05.02.2012 21:36

Frábær helgi

Frábær helgi að baki.
 
Vonandi hafa allir lært eitthvað nytsamlegt fyrir sína hesta og reiðmennsku :0) Vil þakka öllum þeim sem hjálpuðu til við að koma þessu námskeiði á.

Hótel Capitano, þeim sem komu með kökur, Ellen fyrir að koma með hnakkakynningu, öllum þeim sem komu á sýnikennsluna og námskeiðið og að sjálfsögðu Sölva bestu þakkir fyrir að koma og væri gaman ef hann kæmi aftur til okkar. 

Vil líka minna þá sem eiga eftir að borga fyrir sýnikennsluna og námskeiðið að greiða hið fyrsta, ég er með allt skrifað hjá mér :0)

Næst vil ég svo minna á að Gísli járningamaður er að koma um næstu helgi og geta menn pantað hjá Ingólfi í síma 8947333.

Einnig er ég með 4 hnakka sem fólk getur fengið að prufa ef þið eruð í hnakkakaupshugleiðingum :)

ég set inn myndir um leið og ég kemst í það.

Framundan
er svo MBK námskeiðið og þeir sem hafa skráð sig á blaer@visir.is eða eiga eftir að skrá sig endilega sem fyrst, því að við ætlum að hittast á fimmtudaginn í félagshúsinu kl 17:00.

Einnig verður boðið upp á "konunámskeið" og er gott ef skráð er á helgarosa85@gmail.com eða hafa samband í síma 8654247.  og myndum við hittast á föstudaginn næsta. 
Flettingar í dag: 154
Gestir í dag: 67
Flettingar í gær: 200
Gestir í gær: 72
Samtals flettingar: 228070
Samtals gestir: 71740
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:06:34