Fréttir

23.8.2009

Haustferð og fleira

Þökkum félögum okkar á Héraði kærlega fyrir góðar móttökur og skemmtilegt mót um helgina.

Minnum á haustferðina okkar sem verður um næstu helgi, lagt verður af stað frá Skálateigi á föstudegi (nánari tímasetning auglýst síðar) og riðið í Vöðlavík þar sem gist verður í góðum skála á Karlsstöðum í tvær nætur, heimferð á sunnudag. Gott er að skrá sig sem fyrst hjá Dodda á Skorrastað en hann tekur einnig við greiðslu fyrir gistinguna. Munið eftir sundfötunum og öðrum viðlegubúnaði. Ef einhver er sjúkur í að aka trússi í Vöðlavík á föstudaginn eða sækja á sunnudaginn má hann gjarnan láta heyra frá sér. Allar nánari upplýsingar veita Villi og Doddi.

Skrifað 23.8.2009 kl. 21:44 af Þórhöllu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 125
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 94925
Samtals gestir: 30280
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 06:48:05