Æskulýðsstarf
HESTAKRAKKASTARF VETURINN 2010
Febrúar
3.2. Öskupokasaumur
10.2. Föndurdagur
17.2. Öskudagsgleði - koma í búningunum sínum
24.2. Spiladagur
Mars
3.3. Reiðtygjaskreyting, koma með beisli, múla og nálar, bæði fínar og grófar
10.3. Ullarþæfing-seríugerð
17.3. Útileikir - koma vel klædd
24.3. Myndbandasýning
31.3. Söngstund og leikir
Kæru hestakrakkar og foreldrar.
Hestakrakkastarfið í vetur verður alla miðvikudaga frá kl. 17-18:30.
Best er að koma alltaf vel klædd og skóuð ef okkur skyldi detta í hug að skreppa út í einhver verkefni.
Ef einhverjir luma á spilum, föndurdóti eða litum sem hætt er að nota þá er allt slíkt vel þegið í félagshúsið. Einnig allar bækur sem félagsmenn vilja láta, ætlum að nota þær í fjáröflun.
Minnum ykkur á að fylgjast vel með heimasíðunni okkar, www.123.is/blaer, en þar eru t.d. birtar fréttir af starfinu, auglýsingar og myndir.
Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát
Æskulýðsnefnd
Unglingadeild
» Útreiðartúrar alla fimmtudaga kl 17, hist um miðja sveit
» Fundur með æskulýðsnefnd mánudaginn 22.2. klukkan 16:30