Fréttir
3.10.2009
Viðhorf manns og hests
Þegar maðurinn byrjar að temja hestinn þarf hann að hafa góða þekkingu á því hvernig hann hugsar, bregst við og skynjar umhverfi sitt, manninn og þær aðstæður sem eru til staðar hverju sinni. Þetta er nauðsynlegt til þess að hægt sé að vinna með hestinn á öruggan og sanngjarnan máta.
Viðhorf mannsins til hestsins
Í allri umgengni og þjálfun
hestsins erum við stöðugt að móta hegðun hans og hesturinn er alltaf að
læra. Með því að fylgjast með hestinum í sínu náttúrlega umhverfi getur
maðurinn lært mikið um það hvernig hann hagar sér og bregst við áreiti
og síðan nýtt sér það við þjálfun hans. Hestinum var ekki ætlað það frá
náttúrunnar hendi að vera í þjónustu mannsins og skynfæri hans og
viðbrögð eru ekki þróuð til þess að bregðast ,,rétt" við áreiti frá
honum. Maðurinn þarf að varast að líkjast hestinum og viðbrögðum hans
við sjálfan sig og þau viðbrögð sem hann myndi sjálfur sýna við
ákveðnar aðstæður. Það þarf að nálgast hestinn á eðlislægum forsendum
hans og vinna út frá því til þess að árangur geti náðst. Síðustu
áratugi hafa í æ ríkari mæli komið fram þjálfunar- og tamningaraðferðir
sem byggja á því að nýta sér viðhorf hestsins og náttúruleg viðbrögð
hans við tamningu og þjálfun. Þessar aðferðir eru ekki nýjar heldur
hafa þær verið þekktar lengi en ekki notaðar almennt fyrr en á síðustu
10-15 árum.
Með því að þekkja eðli hestsins getum við kennt honum nýja hegðun á sanngjarnan og auðveldan máta. Maðurinn talar sitt tungumál og hefur meðfætt atferli alveg eins og hesturinn, en hefur það fram yfir hann að geta beitt rökhugsun sem hann getur nýtt sér við þjálfun og alla meðhöndlun hestsins.
Eiginleikar hestsins
Hópdýr og félagsvera - vill ekki vera einn.
Sækist eftir leiðtoga.
Skilur líkamstjáningu.
Bregst við staðsetningu og áreiti.
Flóttadýr sem bregst við hættum og mögulegum háska með því að flýja.
Daginn sem hesturinn fæðist kann hann flest af því sem maðurinn vill að hann geri þegar byrjað er að temja hann og ríða honum. Það er hins vegar viðfangsefni tamningamannsins og knapans að kalla fram ákveðnar hreyfingar, hegðun og viðhorf hjá hestinum. Það tekst best ef unnið er út frá forsendum hestsins.
