Fréttir

29.12.2009

Áramótareið Blæs

Í dag 29.desember fundaði útreiðarnefnd í fyrsta skipti á árinu.

Eftir langan og strangan fund hjá útreiðarnefnd þar sem allir voru ósammála um hvar ætti að byrja reiðtúrinn var loksins komist að niðurstöðu.

Nefndin ákvað að farið yrði reiðtúr á gamlársdag kl 13:00 frá innbænum og komið við á öllum bæum og stækkaður hópurinn. Riðið verður út í félagshesthús þar sem Magga mun vígja hesthúsið sitt og býður upp á gotterí.

Að því loknu verður riðið innúr á temmilegum hraða.

Þegar allir hafa komist heilir heim er boðið upp á kræsingar í hesthúsunum hjá Villa og hjá Guggu og Sigga.



Skrifað 29.12.2009 kl. 21:44 af Helgu Rósu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 20
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 148
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 94658
Samtals gestir: 30186
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 05:43:37