Fréttir
20.3.2010
Járningarnámskeið
Kæru félagsmenn
Okkur í stjórninni langar til að kanna áhuga hjá ykkur um að fá járningarnámskeið til okkar á næstu vikum, ekki kominn neinn tími á það heldur viljum við sjá hvaða tími myndi henta sem flestum. Þeir sem hafa áhuga sendið mail á dogg80@gmail.com
Kennari yrði Gísli Steinþórsson
16.3.2010
Félagsfundur
Kæru félagsmenn
Mjög áríðandi félagsfundur verður haldinn fimmtudagskvöldið 18. mars kl 20:30 á Kirkjubólseyrum.
Efni fundar: Lagning Norðfjarðarvegar og framtíð Kirkjubólseyra.
Mikilvægt að allir mæti og kynni sér stöðu þessara mála sem varða okkur öll.
Stjórnin
15.3.2010
Æskulýðsstarf
Kæru hestakrakkar og foreldrar
Vegna árshátíðar Nesskóla, páskafrís o.f.l. verða ekki fleiri hestakrakkaviðburðir fyrir páska. Sjáumst hress eftir páska, með hækkandi sól breytist starfið þannig að þið skulið fylgjast vel með nýrri dagskrá sem birt verður hér á síðunni fljótlega
Kær kveðja
Æskulýðsnefnd

Ath breytt dagsetning
Fyrsta mót Fellabakarísmótaraðar frestast fram til sunnudagsins 21 mars. Kepnni byrjar kl 14.00.
Keppt verður í fjórgangi.
Hægt verður að skrá sig fram á föstudagskvöldið 19 mars.
Tekið verður við skráningum í síma 867-7240 Þórir og 866-9942 Dagbjört
Mótanefnd

Keppt verður í fjórgangi.
Hægt verður að skrá sig fram á föstudagskvöldið 19 mars.
Tekið verður við skráningum í síma 867-7240 Þórir og 866-9942 Dagbjört
Mótanefnd
14.3.2010
Fundur
Fundur í æskulýðsnefnd mánudaginn 15.3. klukkan 16:30.
Unglingadeildin á að mæta á þennan fund, áríðandi skilaboð til þeirra þar.
Unglingadeildin á að mæta á þennan fund, áríðandi skilaboð til þeirra þar.
10.3.2010
Hestakrakkar í dag
Kæru hestakrakkar og foreldrar
Í dag er hittingur inni í félagshúsi eins og alltaf á miðvikudögum. Síðast var verið að vinna í beislaskreytingum og við ætlum að halda því áfram í dag, það er því ekki þæfing eins og auglýst er á dagskránni heldur komið þið með nálar og beisli/múla og við höldum áfram þar sem frá var horfið. Liðkum okkur líka kannski úti í góða veðrinu þannig að komið endilega vel skóuð.
Vonumst til að sjá sem flesta

8.3.2010
Gallarnir
Hæ hæ
Helga Rósa skildi gallana eftir hjá mér fyrir þá sem eiga eftir að máta eða vilja endurskoða stærðir þannig að það er hægt að koma við/ hringja í þessari viku og ganga frá pöntun.
Kveðja
Þórhalla 891-9419

Flettingar í dag: 81
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 146
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 94865
Samtals gestir: 30260
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:03:38